Gegn valdníðslu lögreglu

No Borders ofbýður framganga lögregluyfirvalda sem í vaxandi mæli grípa til valdníðslu og sviptingu á réttindum almennings. Ítrekuð harkaleg viðbrögð yfirvalda við lögmætum kröfum almennings fyrir réttlæti, mannhelgi og stuðningi við fólk á flótta eru verulegt áhyggjuefni. Þessar aðgerðir, ásamt áformum um frekari vopnavæðingu, fangabúðir fyrir fólk á flótta og forvirkar rannsóknarheimildir, gefa tilefni til mótmæla gegn aðför lögregluyfirvalda að frelsi og réttindum almennings.

Nýlegar aðgerðir lögreglu við mótmæli:

Meira en þrjátíu lögreglumenn umkringdu Alþingishúsið þann 5. febrúar, í mótmælum til stuðnings palestínsku flóttafólki, þar sem þeir reyndu að aftengja hljóðkerfi og reka mótmælendur í burtu án nokkurs aðdraganda. 

Viðbrögð við mótmælum grunnskólabarna:

Næsta dag tók lögreglan sig til og umkringdi friðsöm mótmæli grunnskólabarna með járngirðingu, handtók tvö börn með ofstæki, þrátt fyrir að börnin væru einungis væru að nýta stjórnarskrárvarinn rétt sinn til að mótmæla.

Lögreglan virðist ætla sér að ganga ennþá lengra

Þá höfum við einnig orðið vitni að umræðu og aðgerðum sem miða að frekari vopnavæðingu lögreglunnar, meðal annars með innleiðingu á rafbyssum og kaupum á ógrynni af hríðskotabyssum. Slíkar ráðstafanir, ásamt frumvarpi um forvirkar rannsóknir, vekja alvarlegar áhyggjur af stefnu stjórnvalda í löggæslumálum.

Í fyrra tók Jón Gunnarsson, þáverandi dómsmálaráðherra það upp á sitt einsdæmi að keyra í gegn nýja reglugerð sem heimilar lögreglu notkun á rafbyssum. Hann hefur einnig talað fyrir frekari vopnavæðingu og festi dómsmálaráðuneytið kaup á gríðarlegu magni af skotvopnum á borð við hríðskotabyssur við upphaf árs 2023.

Nú áformar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra að koma í gegn lögreglufrumvarpi sem gefur lögreglu heimild til forvirkra rannsókna. Með öðrum orðum mætti kalla þetta heimild til njósna.

Þess er krafist að 19. grein lögreglulaga verði felld úr gildi. Hún skyldar almenning til að hlýða lögreglunni án skilyrða. Lögregla hefur ítrekað beitt því valdi sem greinin færir henni til þess að afnema réttinn til mótmæla að eigin geðþótta.

Mótmælt er öllum áformum lögregluríkisins um forvirkar rannsóknir, sem og hvers kyns útvíkkun á heimildum lögreglunnar sem ógna réttindum almennings.

Lögreglan ofbeldissveit ríksivaldsins. Öryggi og frelsi almennings stafar ógn af hvers kyns vopnaburði hennar.  Mótmælt er þeirri víðtæku vígvæðingu lögreglu sem yfirvöld sjá fyrir sér.

Þess er krafist að fallið verði frá öllum áformum um fangabúðir fyrir fólk á flótta og að heimildum lögreglu til að færa börn í varðhald. Þau eru knúin áfram af kerfislægum rasisma og hvítri yfirburðahyggju. Þeirri hugmynd þrælahaldsins að hvít yfirstétt geti hneppt brúnt eða svart fólk í fjötra að eigin geðþótta er harðlega mótmælt.

Mótmæli verða fyrir utan lögreglustöðina á Hverfisgötu, þriðjudaginn 13.
febrúar klukkan 16:00.

Previous
Previous

Tilvera okkar er undarlegt ferðalag

Next
Next

Dagbók Mohammed Alhaw